Október mánuður myndlistar

Í síðustu viku fengu nemendur og kennarar í listnámi góðan gest, en tilefnið var „Mánuður myndlistar“. María Kjartansdóttir myndlistamaður kynnti starf sitt og verkefnavinnu síðustu missera og vakti þannig athygli á möguleikum skapandi greina sem framtíðarstarfs.

Happy Halloween

Það verður Halloween kvöld í FMOS fimmtudaginn 28. október kl. 20. Nú er málið að dusta rykið af búningunum, klæða sig upp og fagna með samnemendum.

Áttu eftir að ganga frá valinu?

Síðasti dagur til að velja áfanga fyrir vorönn 2022 er föstudagurinn 22. október. Allir nemendur sem ætla sér að vera í skólanum verða að ganga frá vali annars eiga þeir ekki vísa skólavist á næstu önn.

Innritun fyrir vorönn 2022

Innritun vegna náms á vorönn 2022 stendur yfir 1.-30. nóvember. Sótt er um í gegnum vef Menntamálastofnunar.

Tökum grímuna niður

Í dag, miðvikudaginn 20. október 2021, hefur grímuskylda verið felld niður í samfélaginu og því þurfa nemendur FMOS ekki að bera grímur í skólanum. Þeir sem kjósa að nota grímur áfram, af hvaða ástæðu sem er, er frjálst að gera það. Höldum áfram að gæta að persónulegum sóttvörnum, almennu hreinlæti eins og að þvo hendur eða spritta eftir því sem við á. 

Sálfræðispjallið

Næsta föstudag mun Sálfræðispjallið fjalla um það að geta sagt ,,nei“ og að setja fólki mörk. Sérstaklega gagnlegt fyrir þau sem segja alltaf ,,já“ við öllum aukavöktum í vinnunni og enda með allt of mikið að gera!

Valtorg mánudaginn 18. október

Mánudaginn 18. október opnum við valtímabilið með valtorgi í matsalnum í verkefnatíma kl. 10:30. Kennarar verða til taks og kynna þá áfanga sem eru utan áætlunar þ.e. nýja áfanga og áfanga sem eru kenndir sjaldan. Allir nemendur sem ætla sér að vera í skólanum á vorönn 2022 verða að ganga frá vali á valtímabilinu, 18.-22. október.  Þeir sem velja ekki eiga ekki vísa skólavist.

Næring og núvitund í FMOS

Nemendur í áfanganum Næringu og núvitund bökuðu gómsætt hollustu bananabrauð í dag og gæddu sér á því á meðan þeir tóku þátt í könnunni Ungt fólk.

Úrvinnsludagur 11. október

Á mánudaginn, 11. október, er úrvinnsludagur. Öll kennsla fellur niður þann dag.

Foreldrafundur

Fimmtudaginn 7. október kl. 17:00 er foreldrum og forráðamönnum yngstu nemenda skólans (fd. 2004 og 2005) boðið að koma og hitta umsjónarkennara barna sinna. Meðal annars verður farið yfir starfsemi skólans og skipulag námsins kynnt.