Endurskoðað hestakjörsvið fyrir skólaárið 2026-2027. Nýjir nemendur innritast á þessa braut.
- Fleiri hestatengdir áfangar
- Aukin fjölbreytni
- Nýjar áherslur
Markmið breytinganna er að fjölga hestatengdum áföngum á starfstíma skólans og minnka vægi vinnustaðanáms utan starfstíma skólans. Áhugasömum er bent á að hafa samband við umsjónarmann brautarinnar ef frekari upplýsinga er óskað; karen@fmos.is
Opin stúdentsbraut, hestakjörsvið er 200 eininga bóknámsbraut og er meðalnámstími 6-7 annir. Brautinni er skipt upp í kjarna, kjörsvið og frjálst val. Til að útskrifast af brautinni þurfa nemendur að ljúka 112 einingum af kjarnagreinum, 45 einingum af kjörsviðsgreinum og 43 einingum af frjálsu vali. Brautinni lýkur með stúdentsprófi og nám á henni er góður undirbúningur fyrir vinnumarkaðinn og/eða frekara nám á háskólastigi. Bent er á að við skipulagningu náms á opinni stúdentsbraut er mikilvægt að nemendur hafi samráð við náms- og starfsráðgjafa.
Sérhæfing á hestakjörsviði er kjörin hvort sem nemendur vilja styrkja sig í hestaíþróttinni, undirbúa sig fyrir störf í hestatengdri starfsemi eða sem undirbúningur fyrir áframhaldandi nám í greininni. Nemendur geta lokið þjálfarastigi 1 frá ÍSÍ ásamt sérgreinahluta frá Landssambandi hestamannafélaga. Sjá nánar um þjálfarastig hér:
Þjálfaramenntun ÍSÍ | isi.is.
Nemendur sem eru skráðir á Opna stúdentsbraut, hestakjörsvið, skv. eldra skipulagi, geta skipt yfir á þessa braut óski þeir eftir því. Þeir sem vilja skipta um braut tali við áfangastjóra eða náms- og starfsráðgjafa. Breytingar gilda frá 1. ágúst 2026.
Ákveðið hlutfall eininga þarf að vera á hverju þrepi og þurfa námsferlar nemenda að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Hámark á 1. þrepi eru 55 einingar
- Lágmark á 3. þrepi eru 50 einingar
Inntökuskilyrði:
Verkleg kennsla á brautinni eru töluvert dýrari en önnur verkleg kennsla (6 nemendur í hóp) og þess vegna þurfa nemendur að greiða sérstakt gjald vegna hennar. Gjaldið er 40.000 kr. á þeim spönnum þar sem verkleg kennsla fer fram (4 áfangar á þriggja ára tímabili). Nauðsynlegt er að nemendur hafi hest til umráða. Verklega kennslan fer fram í reiðhöll Hestamannafélagsins Harðar í Mosfellsbæ og hestar nemenda þurfa að vera í Mosfellsbæ þegar verklegir áfangar fara fram. Nemendur sjá um umsjón og kostnað sem fylgir nemendahestinum í hesthúsi að eigin vali. Ef óskað er eftir upplýsingum um hestakost eða hesthúsapláss má hafa samband við umsjónarmann hestakjörsviðs; karen@fmos.is
Lokamarkmið Opinnar stúdentsbrautar eru:
Að nemendur
- séu undirbúnir fyrir virka þátttöku í lýðræðisþjóðfélagi
- hafi öðlast virka meðvitund gagnvart umhverfi sínu, lært að njóta þess, virða það og nýta á skynsamlegan hátt
- búi yfir frumkvæði, skapandi hugsun og sjálfstæði
- hafi hæfni til að tjá sig og eiga samskipti á íslensku og erlendum tungumálum
- séu vel undirbúnir fyrir frekara nám
- séu læsir á sjálfa sig og umhverfi sitt
- geti notað þekkingu sína og færni við lausn fjölbreyttra verkefna í lífi og starfi
Hér má finna allar áfangalýsingar skólans
| Kjarni 112e |
|
|
|
|
1. þrep |
2. þrep |
3. þrep |
einingar |
| DANS2TL05 |
DANS2LT05 |
|
|
|
|
10 |
|
10 |
| ENSK2OT05 |
ENSK2TM05 |
ENSK3EX051 |
ENSK3HÁ051 |
ENSK3MB051 |
|
10 |
10 |
20 |
| ÍSLE2MR05 |
ÍSLE2ED05 |
ÍSLE3NB052 |
ÍSLE3NJ052 |
ÍSLE3ÖL052 |
|
10 |
10 |
20 |
| LÝÐH1HN01 |
LÝÐH1VN01 |
LÝÐH1HR01 |
LÝÐH1HR01 |
LÝÐH1HR01 |
5 |
|
|
5 |
| FRAM1AA033 |
FRAM1AB03 |
FRAM2AA03 |
FRAM2AB03 |
|
6 |
6 |
|
12 |
| STÆR2LF03 |
STÆR2FL02 |
STÆR2FM05 |
STÆR3TF054 |
|
|
10 |
5 |
15 |
| SPÆN1BY05 |
SPÆN1SP05 |
SPÆN1ÞR05 |
|
|
15 |
|
|
15 |
| NÁTT2GR05 |
|
|
|
|
|
5 |
|
5 |
| UMHV2UN05 |
|
|
|
|
|
5 |
|
5 |
| FÉLAGSGREIN5 |
|
|
|
|
|
5 |
|
5 |
| Samtals: |
|
|
|
|
26 |
61 |
25 |
112 |
1) Velja þarf tvo af þremur áföngum á 3. þrepi í ensku og nemendur ráða í hvaða röð þeir taka þá; 2) Velja þarf tvo af þremur áföngum á 3. þrepi í íslensku og nemendur ráða í hvaða röð þeir taka þá; 3) FRAM er áfangi þar sem unnið er með framtíðarfærni s.s. tölvufærni, vinnulag, samskipti, fjármálalæsi og gagnrýna hugsun; 4) Velja má annan áfanga í stærðfræði á 3. þrepi; 5) Velja þarf einn áfanga í félagsfræði, heimspeki, sögu eða sálfræði sem hluta af kjarna.
| Kjörsvið 43e |
|
|
|
|
1. þrep |
2. þrep |
3. þrep |
einingar |
| HEST1HE05 |
HEST2FB05 |
|
|
|
5 |
5 |
|
|
| HEST1HV05 |
HEST2FV05 |
|
|
|
5 |
5 |
|
|
| HEST2VN04 |
HEST2VN06 |
HEST2VU04 |
HEST2VV06 |
HEST2VN03 |
|
23 |
|
|
| Samtals: |
|
|
|
|
|
|
|
43 |
Allir áfangarnir sem eru tilgreindir á hestakjörsviði eru skylduáfangar. HE og FB eru bóklegir áfangar. HV og FV eru verklegir.
Samtals einingar á braut: 200
Gildir frá 1. ágúst 2026
Síðast breytt: 7. maí 2026