Lögfræði

Skólarnir sem bjóða upp á nám í lögfræði ásamt aðgangsviðmiðum: Hverju þarf ég að bæta við mig til að vera vel undirbúin/n?

Háskóli Íslands

  • Íslenskt stúdentspróf, lokapróf frá háskólabrú Keilis eða sambærilegt próf frá erlendum skóla
  • Inntökupróf


Ég þarf ekki að bæta neinu við mig.

Háskólinn í Reykjavík

  • Stúdentspróf eða jafngilt próf
  • Áhersla lögð á góðan árangur í íslensku, ensku, norrænu tungumáli og stærðfræði.

Háskólinn í Reykjavík (lögfræði með viðskiptafræði sem aukagrein)

  • Stúdentspróf eða jafngilt próf
  • Áhersla lögð á góðan árangur í íslensku, ensku, norrænu tungumáli og stærðfræði.
  • Nemendur þurfa að hafa tekið:

- þrjá stærðfræði áfanga á þriðja þrepi



Ég þarf ekki að bæta neinu við mig.




Ef ég er á félags- og hugvísindabraut eða opinni stúdentsbraut þarf ég að bæta við mig:
  • tveimur stærðfræði áföngum á þriðja þrepi.

Háskólinn á Akureyri

  • Stúdentspróf eða sambærilegt próf
  • Æskilegt að hafa klárað áfanga á:

- 3. þrepi í ensku

- 3. þrepi í dönsku eða öðru Norðurlandamáli



Það væri æskilegt fyrir mig að bæta við mig 3. þreps áfanga í dönsku.

Háskólinn á Bifröst (viðskiptalögfræði)

  • Stúdentspróf eða sambærileg menntun

Ég þarf ekki að bæta neinu við mig.