Stefna mötuneytisins
Mötuneyti Framhaldskólans í Mosfellsbæ er fyrir nemendur og starfsfólk skólans og starfar í samræmi við áherslur Heilsueflandi framhaldsskóla. Boðið er uppá heitan heimilismat í hádeginu, ásamt úrvali af réttum í salatbar. Matseðill er gerður einu sinni í viku og birtur á heimasíðu og á skjá í anddyri skólans. Við gerð matseðils er áhersla lögð á hagkvæmni í rekstri um leið og boðið er upp á hollan og næringarríkan mat með viðmið Manneldisráðs að leiðarljósi. Notast er við besta hráefni sem völ er á hverju sinni. Unnið er sem mest frá grunni og unnar vörur eru í algjöru lágmarki.
Verð á hádegismat má finna í gjaldskrá skólans.
Flokkun á sorpi er virkt í mötuneyti.
Innra eftirlit er virkt, eins og skylt er í öllum matvælafyrirtækjum. Markmiðið er að fyrirbyggja að matvæli geti valdið matarsjúkdómum og að tryggja að matvæli séu að öðru leyti í samræmi við ákvæði matvælalaga nr. 93/1995 og reglugerða settra samkvæmt þeim.
Síðast breytt: 10. júní 2026