Umsjónarkerfi FMOS

Verkefni umsjónarkennara:

  • sinna tveimur yngstu árgöngum skólans
  • fylgjast með skólagöngu nemenda sinna og veita aðstoð og leiðsögn um hvaðeina sem viðkemur námi þeirra og gengi í skólanum
  • hvetja nemendur til að stunda námið af kostgæfni og leita leiða til að aðstoða þá ef þeir þurfa
  • fylgjast með ástundun nemenda, bæði mætingu og verkefnaskilum
  • eru í sambandi við nemendur sem fara undir 80% í mætingu og/eða skila ekki verkefnum og foreldra þeirra
  • eru í samstarfi við náms- og starfsráðgjafa og stjórnendur um lausnir fyrir nemendur sem þurfa umfangsmeiri aðstoð
  • hitta umsjónarnemendur á fundi í upphafi annar og hafa einstaklingsviðtöl við hvern og einn á fyrstu vikum annarinnar
  • hitta umsjónarnemendur á fundi tvisvar yfir önnina
  • taka alla umsjónarnemendur í stöðuviðtöl eftir miðannarmat
  • aðstoða nemendur við að velja áfanga fyrir næstu önn, sjá til þess að allir velji og fara yfir valið
  • hittast á umsjónarkennarafundi 2-3 sinnum á önn

Foreldrar/forráðamenn nemenda yngri en 18 ára hafa aðgang að ýtarlegum upplýsingum í gegnum upplýsingakerfi Innu sem aðgengilegt er af vef skólans.

Nemendur eldri en 18 ára geta leitað til náms- og starfsráðgjafa eftir aðstoð. Hægt er að panta tíma á skrifstofu skólans eða senda tölvupóst á adalsteinn@fmos.is eða svanhildur@fmos.is. Sjá nánar um þjónustu náms- og starfsráðgjafa.

Nemendur sem nálgast útskrift geta einnig leitað til áfangastjóra, netfangið er ingathora@fmos.is 

 

Síðast breytt: 1. febrúar 2024