Skemmtileg heimsókn
16.04.2026
Ævar Þór Benediktsson rithöfundur með meiru, kom í heimsókn á sérnámsbrautina um daginn.
Hann sagði meðal annars frá bókunum sínum og hvernig þær urðu til. Ævar las upp úr nýjustu bókinni sinni Skólastjóranum með miklum tilþrifum. Nemendur voru duglegir að spyrja og spjalla, enda búnir að undirbúa heimsóknina vel með kennurunum sínum.