Rétt áður en kjörstaður opnaði kl. 10:00.
Í dag fóru fram skuggakosningar í FMOS vegna komandi sveitastjórnakosninga laugardaginn 16. maí. Þar gafst nemendum kostur á að velja milli sex lista sem bjóða fram í Mosfellsbæ að þessu sinni. Þetta eru listi B-listi Framsóknarflokks, C-listi Viðreisnar, D-listi Sjálfstæðisflokks, L-listi Vina Mosfellsbæjar, M-listi Miðflokksins og S-listi Samfylkingarinnar, en frambjóðendur komu í heimsókn í gær í skólann til að kynna áherslur listanna og málefni. Það er óhætt að segja að nemendur hafi sýnt þessu töluverðan áhuga.
Í verkefnatíma fór líka fram húsfundur skólans, en það er árlegur fundur nemenda, starfsfólks og stjórnenda þar sem færi gefst á að kynna nýjungar í skólanum eða ræða ákveðið málefni. Að þessu sinni kynnti Kristján skólameistari breytingar á brautum skólans og nýtt spannarkerfi sem verður tekið upp næsta haust. Þá mun hver önn skiptast í tvær spannir sem taka 8 vikur hver, en þá verða fjórar spannir á hverjum vetri í stað tveggja anna. Um þetta nýja kerfi spunnust áhugaverðar umræður og spurningar, en líka var rætt um mötuneytið, nýja stundatöflu og margt fleira.