Heimsókn í Háskóla Íslands

Það var tekið vel á móti hópnum. Byrjað var á því að kynna námið, síðan fengu nemendur leiðsögn um nýja húsnæðið á Hótel Sögu. Diplómanámið er einstaklingsmiðað starfstengt nám þar sem nemendur fá stuðning í bóklegu námi sem og á vettvangi. Námið er skipulagt í samræmi við yfirlýsta alþjóðlega stefnu hagsmunasamtaka fólks með þroskahömlun, mannréttindasáttmála og stefnu Háskóla Íslands. Tilgangur námsins er að veita fólki með þroskahömlun möguleika til fullgildrar samfélagsþátttöku.