Ný Íslenskubraut

Opnað hefur verið fyrir umsóknir á Íslenskubraut í FMOS en brautin er fyrir nemendur af erlendum uppruna.

Innritun í framhaldsskóla á haustönn 2024

Innritun fyrir haustið 2024 er óvenju snemma á ferðinni í ár en búið er að opna fyrir umsóknir eldri nemenda. Innritunin er rafæn og sótt er um í gegnum vef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Hlekki og dagsetningar innritunar má finna með því að opna fréttina og lesa áfram.

Endurskiladagur 8. apríl

Mánudaginn 8. apríl er endurskiladagur í FMOS. Þá er ekki kennt samkvæmt stundatöflu heldur gefst nemendum kostur á að vinna upp ákveðin verkefni í áföngum sínum í samráði við kennara sína.

Páskafrí

Páskafrí stendur yfir dagana 25. mars til 2. apríl. Kennsla hefst samkvæmt stundatöflu miðvikudaginn 3. apríl. Skrifstofa skólans er lokuð þessa daga.

Valtímabilið 18.-22. mars

Valtímabilinu lýkur föstudaginn 22. mars og nú fer hver að verða síðastur að gera athugasemd við þá áfanga sem skráðir voru á námsferilinn í Innu fyrir haustönn 2024. Hægt er að leita til umsjónarkennara, náms- og starfsráðgjafa, áfangastjóra og aðstoðarskólameistara eftir aðstoð við að gera breytingar.

Opið hús 12. mars

Opið hús fyrir grunnskólanemendur, foreldra og forráðamenn verður í FMOS þriðjudaginn 12. mars kl. 16:30-18:00.

Þemadagur 7. mars

Fimmtudaginn 7. mars var þemadagur í FMOS. Í þetta sinn var matarþema og dagana á undan skráðu nemendur sig á smiðjur eftir áhugasviði hvers og eins.

Skólaþróunardagur 1. mars

Föstudaginn 1. mars fellur öll kennsla niður en þá mun starfsfólk framhaldsskóla á höfuðborgarsvæðinu og nokkurra utan af landi halda sameiginlegan starfsþróunardag. Kennsla verður samkvæmt stundatöflu á mánudaginn.

Endurskiladagur 14. febrúar

Miðvikudaginn 14. febrúar er endurskiladagur í FMOS. Þá er ekki kennt samkvæmt stundatöflu heldur gefst nemendum kostur á að vinna upp ákveðin verkefni í áföngum sínum í samráði við kennara sína.

Alþjóðadagur kvenna og stúlkna í vísindum

Alþjóðadagur kvenna og stúlkna í vísindum verður haldinn hátíðlegur um heim allan sunnudaginn 11. febrúar en þar sem við erum ekki í skólanum á sunnudögum þá tókum við forskot á sæluna og héldum upp á daginn í dag, föstudaginn 9. febrúar.