HLSE2ÞF05 - Þjálffræði

Þjálffræði

Einingafjöldi: 5
Þrep: 2
Forkröfur: HLSE1HH5
Þjálffræði er framhaldsáfangi í heilsueflingu þar sem farið er dýpra í viðfangsefni eins og undirstöðuþjálfun, liðleika, þolþjálfun, styrktarþjálfun, snerpuþjálfun, byggingu líkamans, æfingaráætlanir, íþróttameiðsl og íþróttasálfræði/hugarþjálfun. Áfanginn er góður grunnur fyrir þá sem hafa áhuga á bæta eigin getu í þjálfun, fara í einkaþjálfun, íþróttakennaranám eða annað sambærilegt nám. Mikil áhersla er lögð á fagleg vinnubrögð, þ.e að nemendur læri að setja sér markmið, fari heilbrigðar leiðir að bættum árangri og að góður grunnur, rétt tækni og markvissar æfingaráætlanir eru æskilegar leiðir til að ná árangri til frambúðar. Áfanginn er bæði bóklegur og verklegur.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi góðrar upphitunar, teygju og bandvefslosunar
  • hlutverki þol-, styrktar- og liðleikaþjálfunar
  • mismunandi gerðum styrktar- og þolþjálfunar
  • starfsemi hjarta- og lungna
  • breytingum á hjarta- og æðakerfi við þolþjálfun
  • hvað gerist í líkamanum við styrktarþjálfun
  • æfingarkerfum og áætlunum
  • helstu vöðvum líkamans og virkni þeirra
  • fyrstu meðferð við íþróttameiðslum
  • mikilvægi hugrænnar þjálfunar í íþróttum.

Leikniviðmið

  • skipuleggja ólík styrktarþjálfunarprógröm
  • skipuleggja ólík þolþjálfunarprógröm
  • nálgast upplýsingar á veraldavefnum til þess að nýta sér í þjálfun.

Hæfnisviðmið

  • hanna æfingaprógram og framfylgja því með breyttum og/eða bættum lífsstíl í huga
  • taka sjálfstæðar ákvarðanir og vera gagnrýnin á upplýsingar er varða hreyfingu og þjálfun
Nánari upplýsingar á námskrá.is