STSÉ1ÖH02 - Öryggi, hreinlæti og atvinnuleit

atvinnuleit, hreinlæti, öryggi

Einingafjöldi: 2
Þrep: 1
Í þessum áfanga er sjónum beint að vinnuvernd, öryggismálum, vinnustöðum og mikilvægi þess að vera ábyrgur starfsmaður. Nemendur fá þjálfun í að leita að og sækja um vinnu. Útbúin er ferilskrá og starfsemi Vinnumálastofnunar er kynnt.

Þekkingarviðmið

  • mikilvægi þess að fara út á vinnumarkaðinn
  • tilgangi og gildi atvinnuþátttöku í lífi sérhvers einstaklings
  • reglum, hreinlæti og hollustu á vinnustöðum
  • öryggismálum í starfsumhverfinu
  • mikilvægi þess að fylgja settum verklagsreglum
  • ferli atvinnuleitar.

Leikniviðmið

  • fylgja fyrirmælum
  • gera sér grein fyrir mikilvægi hreinlætis á vinnustöðum
  • vega og meta aðstæður á vinnustað með tilliti til öryggismála
  • útbúa ferilskrá
  • sækja um starf.

Hæfnisviðmið

  • geta fylgt reglum sem gilda á vinnustöðum
  • taka þátt í atvinnulífinu
  • sýna ábyrga hegðun á vinnustað
  • nýta sér hlífðarbúnað og hjálpartæki á vinnustað og forðast hættur
  • að mæta stundvíslega til vinnu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is