hreyfing og lýðheilsa - verklegt
Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: Engar forkröfur
Áfanginn er verklegur og fer fram að hluta til í íþróttahúsi Varmá, ELDINGU-líkamsrækt og/eða utandyra. Kennst er tvisvar sinnum í viku og 50 mínútur í senn.
Tímunum er annarsvegar skipt upp í Valtíma, þar sem nemendur geta valið um að fara í útihlaup/göngu/hjólatúr, í ræktina eða verið í íþróttasalnum og hinsvegar skipulagða tíma, þar sem nemendur taka þátt í æfingaráætlun frá kennara.
Hreyfing (verklegt):
Í verklega hlutanum er lögð áhersla á grunnþætti þols, styrktaræfingar og liðleika.
1) Þol: Fjölbreyttar aðferðir verða notaðar til að auka úthald, s.s útihlaup/ganga, þrektæki, stöðvaþjálfun og leikir. Reynt verður að hafa æfingar við áhuga, hæfi og getu hvers og eins.
2) Styrktaræfingar: Fjölbreyttar aðferðir verða notaðar til að bæta líkamsstyrk, s.s. æfingar með eigin líkamsþyngd eða í tækjasal. Reynt verður að hafa æfingar við áhuga, hæfi og getu hvers og eins.
3) Liðleiki: Lögð verður áhersla á teygjuæfingar eftir hvern tíma og miklvægi þeirra.
Þekkingarviðmið
- hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir framtíðina
- hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
- mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar.
Leikniviðmið
- að auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum.
- að reikna út æfingarpúls fyrir brennslu- og/eða þolþjálfun
- aðferðum til að mæla þol, styrk og liðleika.
Hæfnisviðmið
- nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu.
- Viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is