LÝÐH1HG01 - Hjólað/Gengið í skólann

Hjólað/Gengið í skólann

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: Engar forkröfur
Í áfanganum er verið að hvetja nemendur til aukinnar hreyfingar, að hugsa um umhverfi sitt og skilja bílinn eftir heima. Áfanginn er verklegur og gefst nemendum kostur á að fá það metið til eininga að koma gangandi/hjólandi í skólann. Nemendur þurfa í lok annar að sýna fram á 100 km í göngu eða 300 km hjólaferðir.

Þekkingarviðmið

  • hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir framtíðina
  • hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
  • mikilvægi þess að nota göngu/hjól til að koma sér á milli staða

Leikniviðmið

  • auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum.
  • nýta snjalltækni til að kortleggja ferðir sínar

Hæfnisviðmið

  • nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu.
  • viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is