LÝÐH1ÍÚ01 - Útivist

Íþróttir og útivist

Einingafjöldi: 1
Þrep: 1
Forkröfur: Engar forkröfur
Í áfanganum er verið að kynna nemendur fyrir útivist, fjölbreyttum gönguleiðum, hreyfingu og útbúnaði sem mikilvægur er í stuttar göngur. Áfanginn er verklegur og fer fram eftir skólatíma. Kennari fer með hóp nemenda á fjögur fell í nágrenni Mosfellsbæjar og á Esjuna. Auk þess eiga nemendur að sýna fram á fimm skipti þar sem þeir velja sér hreyfingu á borð við hjól, göngu og/eða hlaup.

Þekkingarviðmið

  • hversu mikilvæg góð heilsa er fyrir framtíðina
  • hvað reglubundin hreyfing er góð forvörn fyrir ýmsa andlega og líkamlega sjúkdóma
  • mikilvægi úthalds-, styrktar- og liðleikaþjálfunar.

Leikniviðmið

  • auka úthald sitt, styrk og liðleika með fjölbreyttum aðferðum sem henta hverjum og einum.
  • nýta snjalltækni til að kortleggja útivistina

Hæfnisviðmið

  • nýta heilsulæsi sitt til að nálgast upplýsingar og nýta sér þær til að efla og viðhalda góðri heilsu.
  • viðhalda og/eða bæta líkamlega heilsu.
Nánari upplýsingar á námskrá.is