MYNL1GT03 - Teikning, form- og litafræði

form- og litafræði, grunnáfangi í myndlist, teikning

Einingafjöldi: 3
Þrep: 1
Þessi áfangi er grunnáfangi í myndlist þar sem kennd verða grunnatriði teikningar, form- og litafræði. Lögð er áhersla á að þjálfa formskilning nemenda með því að teikna einföld form svo sem kúlu, kassa, keilu og sívalning. Nemendur kynnast og læra að beita lögmálum myndbyggingar, hvernig ólík form, punktar, línur og áferð hafa áhrif á jafnvægi myndflatarins og merkingu. Í litafræðinni kynnast nemendur grundvallaratriðum í meðferð lita, þar sem þeir kanna samspil lita, virkni þeirra og áhrif.

Þekkingarviðmið

  • grunnþáttum í myndlist
  • notkun teikniáhalda og virkni þeirra
  • litasvið blýantsins og aðferðum til skygginga
  • framkalla þrívídd með skyggingu
  • grunnþáttum formfræði og teikningar
  • blöndun grunnlita í litatóna og hugtök þar að lútandi
  • myndbyggingu
  • eins og tveggja punkta fjarvídd
  • formum og uppbyggingu þeirra.

Leikniviðmið

  • gera skissur og teikningar
  • framkalla þrívídd með skyggingu
  • blanda liti í mismunandi tónum
  • vinna að uppbyggingu myndflatar og nýta sér markvisst hugtök á borð við: - jafnvægi, spennu, þunga, hrynjandi, samhverfu, mynstur og andstæður
  • vinna myndverk í þrívídd og fjarvídd

Hæfnisviðmið

  • nýta reglur og form í eigin listsköpun
  • vinna á persónulegan hátt með eigin hugmyndir og útfært í myndverk með tilliti til lita-, formfræði og myndbyggingar.
  • byggja upp myndverk
Nánari upplýsingar á námskrá.is