HEST1HE05 - Umhirða og atferli - bóklegt

Umhirða og atferli

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Áfanginn er bóklegur og í fyrri hluta hans er lögð áhersla á undirstöðuatriði í fóðrun, heilbrigði og umhirðu hesta. Nemendur munu öðlast góðan grunnskilning á atferli íslenska hestsins og þróunarsögu hans hérlendis, ásamt því að geta greint frá ýmsum fagfélögum sem starfa í þágu hestsins. Í seinni hluta áfangans verður fjallað um líkamsbeitingu hestsins, gangtegundir hans og grunnatriði í reiðmennsku knapans. Nemendur læra um öryggismál í hestaíþróttinni og sitja námskeið í skyndihjálp.

Þekkingarviðmið

  • grunnþörfum íslenska hestsins í fóðrun og umhirðu
  • eðli og atferli hestsins og hvernig knapinn á að umgangast hann
  • gangtegundir íslenska hestsins og notkun þeirra
  • þróunarsögu íslenska hestsins og hvernig íslensk náttúra hefur mótað hann
  • líkama hestsins og hvernig hann beitir sér með og án knapa
  • fræðunum sem liggja að baki einföldum fimiæfingum við hendi, í hringteyming og reið
  • helstu atriðum skyndihjálpar og öryggismálum tengdum faginu

Leikniviðmið

  • tjá sig í umræðum um hesta á faglegum grundvelli
  • vinna sjálfstætt og í hópum
  • flokka hesta í rétt holdastig og reikna fóðurþarfir þeirra
  • greina líkamlega hegðun og skapgerð mismunandi hesta
  • sjá mun á gangtegundum og líkamsbeitingu hesta með og án knapa
  • bregðast rétt við slysum tengdum hestum og mönnum

Hæfnisviðmið

  • miðla þekkingu sinni og reynslu til annarra
  • hafa vald á helstu ásetum, taumhaldi og stjórnun á baki
  • að sinna öryggismálum í sambandi við hesthús, búnað, umgengni við hesta og í reið
  • beita helstu atriðum skyndihjálpar
Nánari upplýsingar á námskrá.is