HLSE1HH05 - Heilbrigt líf

heilbrigt líf - mitt líf, heilsuefling

Einingafjöldi: 5
Þrep: 1
Áfanginn bæði bóklegur og verklegur. Kennt verður þrisvar sinnum í viku; tvisvar 50 mín og einu sinni 100 mín. Bóklegi hlutinn: Áfanginn er undirbúningur fyrir þá sem hafa áhuga á almennri heilsueflingu; þjálfun og þáttum sem hafa áhrif á hana. Áfanginn er góður grunnur fyrir íþróttakennaranám og einkaþjálfaranám. Verklegi hlutinn: Verklegir tímar verða 3-4 sinnum yfir önnina. Nemendur þurfa að klæðast íþróttafötum og taka virkan þátt í tímanum.

Þekkingarviðmið

  • Þolþjálfun
  • Liðleika
  • Styrktarþjálfun
  • Kraftþjálfun
  • Hraðaþjálfun
  • Æfingarkerfum og áætlunum
  • Mælingum
  • Helstu vöðvum og virkni þeirra
  • Helstu vítamínum og fæðubótarefnum
  • Skaðsemi stera á líkamlega og andlega heilsu
  • Offitu og megrunarkúrum
  • Átröskunum; anorexiu og búlemíu
  • Næringarfræði; prótein, fita og kolvetni
  • Matvælalæsi.

Leikniviðmið

  • að reikna út æfingarpúls fyrir brennslu og/eða þolþjálfun og vinna eftir honum
  • að reikna út líkamþyngdarstuðul (BMI)
  • lesa greinar og rannsóknir á gagnrýnin hátt
  • að nálgast upplýsingar á veraldavefnum til þess að nýta sér í þjálfun.

Hæfnisviðmið

  • hanna æfingaprógram og framfylgja því með breyttan lífsstíl í huga
  • taka sjálfstæðar ákvarðanir og vera gagnrýnin á upplýsingar er varða mataræði og hreyfingu
Nánari upplýsingar á námskrá.is