Upphaf vorannar 2023

Skólasetning verður á sal skólans föstudaginn 6. janúar kl. 8:30 og kennsla hefst samkvæmt stundatöflu strax að henni lokinni.

Aðgangur að Innunni verður opnaður fyrir nemendum sem eru búnir að greiða skólagjöld þriðjudaginn 3. janúar. Þá geta nemendur geta skoðað stundatöfluna sína og sent inn óskir um töflubreytingar. Athugið að síðasti dagur fyrir töflubreytingar er fimmtudagurinn 5. janúar. Leiðbeiningar um töflubreytingar má finna hér í þessum hlekk og í "Aðstoð" í Innu. Upplýsingar um námsgögn eru að finna í Innu og er verið að uppfæra þær næstu dagana.

Til að sjá hvenær áfangar eru kenndir í stundatöflunni smelltu á þennan hlekk.

Hægt er að segja sig úr áfanga til 26. janúar, eftir það hafa nemendur skuldbundið sig til að ljúka þeim áföngum sem þeir eru skráðir í. Við minnum á reglur um mætingar og verkefnaskil og biðjum nemendur um að kynna sér þær vel.