Valtorg þriðjudaginn 11. október

Valtímabilið hefst þriðjudaginn 11. október og er opið í viku, til þriðjudagsins 18. október. Við hefjum tímabilið með valtorgi í matsalnum í verkefnatíma kl. 10:30 en þá munu kennarar kynna áfangana sína. Nemendum gefst þá tækifæri til að spyrja kennarana nánar út í áfangana. Að valtorgi loknu verður opnað fyrir valið í Innu. Leiðbeiningar um valið verða aðgengilegar fyrir nemendur undir Aðstoð í Innu. Einnig geta nemendur leitað til umsjónarkennara sinna í verkefnatímum út valtímabilið (vikan 11.-18. október). Náms- og starfsráðgjafar og áfangastjóri verða eldri nemendum til aðstoðar alla vikuna. Áfangalýsingar og áfangaáætlun má finna á vef skólans. Upplýsingar um brautir má finna hér.

Allir nemendur sem ætla sér að vera í skólanum á vorönn 2023 verða að ganga frá vali á valtímabilinu, 11.-18. október. Þeir sem velja ekki eiga ekki vísa skólavist á næstu önn.