Valtímabil hefst þriðjudaginn 10. október

Valtímabilið hefst þriðjudaginn 10. október og er opið í viku, til þriðjudagsins 17. október. Valið er rafrænt og fer fram í Innu. Leiðbeiningar um valið verða aðgengilegar fyrir nemendur undir Aðstoð í Innu. Einnig geta nemendur leitað til umsjónarkennara sinna í verkefnatímum út valtímabilið (vikan 10.-17. október). Náms- og starfsráðgjafar og áfangastjóri verða eldri nemendum til aðstoðar alla vikuna. Lista yfir áfanga sem eru í boði fyrir vorönn 2024 með tenglum á áfangalýsingar má finna með því að smella á þennan hlekk.  Upplýsingar um brautir má finna hér.

Allir nemendur sem ætla sér að vera í skólanum á vorönn 2024 verða að ganga frá vali á valtímabilinu, 10.-17. október. Þeir sem velja ekki eiga ekki vísa skólavist á næstu önn.