Upphaf haustannar 2025

Kynning fyrir nýnema (árg. 2009) verður mánudaginn 18. ágúst kl. 10 og gert er ráð fyrir að henni verði lokið ekki seinna en kl. 12. Þriðjudaginn 19. ágúst verða nemendur boðnir velkomnir á sal skólans kl. 8:30 og að henni lokinni hefst kennsla skv. stundatöflu.

Búið er að loka fyrir töflubreytingar en síðasti dagur til að segja sig úr áfanga er 8. september. Eftir það hafa nemendur skuldbundið sig til að ljúka þeim áföngum sem þeir eru skráðir í. Við minnum á reglur um mætingar og verkefnaskil og biðjum nemendur um að kynna sér þær vel.

Foreldrafundur verður haldinn miðvikudaginn 3. september og verður dagskráin auglýst þegar nær dregur.