Valið er opið til þriðjudags, 14. mars

Valtímabilið hefst þriðjudaginn 7. mars og er opið í viku, til þriðjudagsins 14. mars. Við hefjum tímabilið með valtorgi í matsalnum í verkefnatíma kl. 10:30 en þá munu kennarar kynna áfangana sína. Nemendum gefst þá tækifæri til að spyrja kennarana nánar út í áfangana. Að valtorgi loknu verður opnað fyrir valið í Innu. Leiðbeiningar um valið verða aðgengilegar fyrir nemendur undir Aðstoð í Innu. Einnig geta nemendur leitað til umsjónarkennara sinna í verkefnatímum út valtímabilið (vikan 7.-14. mars). Náms- og starfsráðgjafar og áfangastjóri verða eldri nemendum til aðstoðar alla vikuna.

Hér má finna upplýsingar um þá áfanga sem verða í boði fyrir haustönn 2023. Smelltu á hlekkina til að lesa meira.

Allir nemendur sem ætla sér að vera í skólanum á haustönn 2023 verða að ganga frá vali á valtímabilinu, 7.-14. mars. Þeir sem velja ekki eiga ekki vísa skólavist á næstu önn.