Annarlok

Verkefnadagar hefjast þriðjudaginn 14. maí og lýkur föstudaginn 17. maí sem er jafnframt síðasti kennsludagur vorannar 2024. Búið er að uppfæra breytt skipulag á stundatöflu í Innu. Einkunnir birtast í Innu jafnóðum og kennarar skrá þær inn eftir síðasta kennsludag. Síðasti dagur til að birta einkunnir er fimmtudagurinn 23. maí kl. 9. Verkefnasýning, þar sem nemendur geta komið og séð verkefni sín og útreikninga á lokaeinkunnum, verður sama dag kl. 11-13.