Vel heppnaður endurskiladagur að baki

Vel heppnaður endurskiladagur að baki
Miðvikudaginn 11. febrúar fjölmenntu nemendur í FMOS á endurskiladaginn til að vinna upp verkefni sem þeir áttu eftir að vinna. Stemningin og vinnuandinn var góður á fallegum degi þar sem sólin lét sjá sig.
Slíkir dagar eru tvisvar á hverri önn, en næsti endurskiladagur verður 13. apríl. Nám í FMOS er byggt á metnaðarfullum verkefnum en engin lokapróf eru í skólanum. Endurskiladagar eru mikilvægur hluti af námi skólans til að gefa nemendum tækifæri til að vinna upp verkefni þó þeir hafi forfallast á önninni.

Myndin er af endurskilaverkefnum á íslenskubraut.