Valtorg miðvikudaginn 17. mars

Valtímabilið hefst miðvikudaginn 17. mars og er opið í viku, til miðvikudagsins 24. mars. Við hefjum tímabilið með valtorgi á Teams kl. 10:30 en þá munu kennarar kynna áfanga sem eru utan áætlunar, þ.e. nýja áfanga og áfanga sem eru sjaldan kenndir. Einnig gefst nemendum tækifæri til að spyrja og spjalla við kennarana. Áfangaáætlunina má finna á vef skólans.

Allir nemendur sem ætla sér að vera í skólanum á haustönn 2021 verða að ganga frá vali á valtímabilinu, 17.-24. mars. Valið jafngildir umsókn fyrir næstu önn og þeir sem velja ekki eiga ekki vísa skólavist.