Úrsögn úr áfanga - haustönn 2022

Þeir sem óska eftir að segja sig úr áfanga eru beðnir um að snúa sér til stjórnenda skólans eða náms- og starfsráðgjafa. Eftir 6. september hafa nemendur ekki leyfi til að hætta í áfanga og hafa skuldbundið sig til að ljúka þeim áföngum sem þeir eru skráðir í.
Komi upp einhverjar óviðráðanlegar aðstæður sem gera það að verkum að nemendur telji sig þurfa að hætta í áfanga eru þeir beðnir um að tala við náms- og starfsráðgjafa skólans.