Upphaf haustannar 2023

Kynning fyrir nýnema (árg. 2007) verður miðvikudaginn 16. ágúst kl. 10 og gert er ráð fyrir að henni verði lokið ekki seinna en kl. 12. Kennsla hefst skv. stundatöflu fimmtudaginn 17. ágúst.

Aðgangur að Innunni er opinn þannig að nemendur geta skoðað stundatöflu, námsgögn og sent inn óskir um töflubreytingar. Athugið að síðasti dagur fyrir töflubreytingar er þriðjudagurinn 15. ágúst. Leiðbeiningar um töflubreytingar má finna hér og í "Aðstoð" í Innu.

Hægt er að segja sig úr áfanga til 6. september, eftir það hafa nemendur skuldbundið sig til að ljúka þeim áföngum sem þeir eru skráðir í.