Upphaf haustannar 2022

Kynning fyrir nýnema (árg. 2006) verður þriðjudaginn 16. ágúst kl. 10 og gert er ráð fyrir að henni verði lokið ekki seinna en kl. 12. Skólasetning verður á sal skólans miðvikudaginn 17. ágúst kl. 8:30 og kennsla hefst samkvæmt stundatöflu strax að henni lokinni.

Aðgangur að Innunni er opinn þannig að nemendur geta skoðað stundatöflu, námsgögn og sent inn óskir um töflubreytingar. Athugið að síðasti dagur fyrir töflubreytingar er þriðjudagurinn 16. ágúst. Leiðbeiningar um töflubreytingar má finna á vef skólans og í "Aðstoð" í Innu.

Hægt er að segja sig úr áfanga til 6. september, eftir það hafa nemendur skuldbundið sig til að ljúka þeim áföngum sem þeir eru skráðir í.