Styrkleikavinnustofa

Nemendur á sérnámsbraut tóku þátt í mjög spennandi vinnustofu síðastliðinn mánudag sem bar yfirskriftina "styrkleikavinnustofa" og var framhald af fyrirlestrinum Hugrekki í hegðun sem þau fengu í janúar.

Vinnustofan er byggð á styrkleikamiðaðri nálgun og byggir upp jákvætt hugarfar sem hefur góð áhrif á að draga úr streitu, álagi og hefur góð áhrif til sköpunar. Hugarfar vaxtar, hugrekki, vellíðan og að skapa jákvæða menningu eru viðfangsefnið. Markmið vinnustofunnar er að auka meðvitund á styrkleikum sínum til þess að auka jákvæða menningu og læra að samgleðjast öðrum og setja sér markmið. • Kynnast sjálfum sér betur • Ýtir undir vellíðan • Hverju höfum við stjórn á og hverju ekki • Jákvætt hugarfar • Jákvæð endurgjöf • Styrkleikamat • Aukin liðsheild byggð á trausti og samvinnu

Rannsóknir sýna að einstaklingar sem þekkja styrkleika sína og nýta þá daglega eru sex sinnum líklegri til þess að vera virkir í starfi og daglegu lífi, eru framtaksamari, hamingjusamari og heilbrigðari. Að lokinni vinnustofunni hafa þátttakendur fengið þjálfun og fræðslu um styrkleika og kortlagt sína styrkleika. Það að þekkja sig vel eflir og gefur verkfæri til að takast betur á við lífið. Fá tækifæri til að blómstra og verða besta útgáfan af sjálfum sér.