Stöðupróf í MH

Stöðupróf í arabísku, filippseysku, finnsku, litháísku, pólsku, rússnesku, serbnesku, tékknesku og víetnömsku verða haldin í Menntaskólanum við Hamrahlíð föstudaginn 20. október kl. 14.00.

Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á jog@mh.is með eftirfarandi upplýsingum:

  1. Fullt nafn
  2. Kennitala
  3. Netfang
  4. Símanúmer
  5. Skóli sem nemandi stundar nám við
  6. Stöðupróf í hvaða tungumáli

Próftökugjald er 15.000 kr. og greiðist á skrifstofu skólans. Próftakar verða að hafa meðferðis skilríki í prófið.