Stöðupróf í ensku, dönsku og spænsku

Stöðupróf í ensku, dönsku og spænsku verða haldin í FMOS
Stöðupróf í ensku, dönsku og spænsku verða haldin í FMOS

Stöðupróf í ensku, dönsku og spænsku verða haldin í FMOS á eftirfarandi tímasetningum:

  • Enska, föstudaginn 26. ágúst kl. 15:00
  • Spænska og danska, föstudaginn 2. september kl. 15:00

Fjöldi eininga sem prófin spanna eru:

  • Enska 20 ein.: 10 ein. á 2. þrepi og 10 ein. á 3. þrepi
  • Danska 10 ein. á 2. þrepi
  • Spænska 15 ein. á 1. þrepi

Skráning fer fram með því að senda póst á valgard@fmos.is í síðasta lagi 2 dögum fyrir próftöku, þ.e. miðvikudaginn 24. ágúst fyrir enskuprófið og miðvikudaginn 31. ágúst fyrir spænsku og dönskuprófið. Prófgjald er kr. 20.000 sem greiðist með því að leggja inn á reikning: 0549-26-1425, kt. 480109-0310. Nauðsynlegt er að nafn og kennitala próftaka komi fram. Vinsamlegast sendið afrit af kvittuninni á hallavh@fmos.is. Réttur til próftöku byggist á að prófgjald hafi verið greitt og auk þess verða próftakar að framvísa persónuskilríkjum með mynd þegar komið er í prófið.