Skemmtilegur þemadagur að baki og frábær Árshátíð FMOS fram undan

Dagskrá þemadagsins
Dagskrá þemadagsins
Skemmtilegur þemadagur að baki og frábær Árshátíð FMOS fram undan
Miðvikudaginn 18. mars var Þemadagur í FMOS þar sem nemendur réðu ferðinni og gátu valið á milli skemmtilegra viðburða eins og að prófa rafíþróttir í nýrri og glæsilegri aðstöðu RafMos í skólanum, fara í göngu, perla, lita, spila, fara í borðtennis og spjalla. Dagurinn byrjaði með morgunmat í boði skólans en síðan var ekki til setunnar boðið. Það er erfitt að nefna eitt atriði en kannski bar hæst mjög naumur sigur nemenda á kennurunum í brenniboltamóti, síðan var æsispennandi keppni í Pool þar sem nemendur öttu kappi við Kristján skólameistara FMOS, en ekki mörg sem áttu erindi sem erfiði. Deginum lauk svo með fótboltamóti og karaoke eftir góðan hádegisverð.
Skemmtunin heldur þó áfram um kvöldið þegar Árshátíð FMOS fer fram í Hlégarði með frábærum veitingum, veislustjóri verður Hjálmar Örn Jóhannsson og Sprite Zero Klan halda svo uppi stuðinu fram eftir kvöldi.