Opið hús í FMOS

Opið hús fyrir nemendur í 10. bekk og foreldra/forráðamenn þeirra verður í FMOS miðvikudaginn 6. apríl kl. 17:00-18:30. Við hvetjum alla þá sem eru að útskrifast úr 10. bekk og foreldra/forráðamenn þeirra að koma á Opið hús í FMOS og kynna sér námsframboð skólans, kennsluhætti og upplifa stemminguna í skólanum. Á staðnum verða nemendur, kennarar, náms- og starfsráðgjafar og stjórnendur.

Við hlökkum til að sjá ykkur!