Opið hús í FMOS

Við hvetjum alla þá sem eru að útskrifast úr 10. bekk og foreldra/forráðamenn þeirra að koma á Opið hús í FMOS og kynna sér námsframboð skólans, kennsluhætti og upplifa stemminguna í skólanum. Á staðnum verða nemendur, kennarar, náms- og starfsráðgjafi og stjórnendur.

Farið verður eftir ítrustu sóttvarnarreglum, talið verður inn í húsið, spritt við inngangana og grímuskylda er hjá öllum sem fæddir eru 2004 eða fyrr.

Við hlökkum til að sjá ykkur!