Nýnemagleði í FMOS

Rúmlega hundrað nýnemar hófu nám í FMOS í ágúst og í gær var dagurinn sérstaklega helgaður þeim. Hefðbundinni kennslu lauk kl. 10:30 og við tóku fjölbreytt verkefni þar sem nemendum var skipt í hópa. Hóparnir gengu á milli stöðva og glímdu við ýmss konar verkefni og þrautir. Markmiðið með deginum var fyrst og fremst að gefa nýnemum tækifæri til að kynnast betur, efla tengsl sín á milli og hafa gaman saman. Ekki verður annað séð en að það hafi tekist vel og góður andi hafi einkennt daginn.

Við bjóðum nýnemana hjartanlega velkomna í FMOS og hlökkum til vetrarins með þeim.