Jöfnunarstyrkur - umsóknarfrestur 15. október

Nemendur sem þurfa að búa fjarri lögheimili sínu og fjölskyldu vegna náms geta átt rétt á jöfnunarstyrk frá Menntasjóði námsmanna.

Umsóknarfrestur vegna haustannar er til 15. október og vegna vorannar til 15. febrúar.

Berist umsókn eftir umsóknarfrest skerðist styrkurinn um 15% frá 1. nóvember á haustönn og frá 1. mars á vorönn. Ekki er hægt að sækja þegar meira en fjórir mánuðir eru liðnir frá umsóknarfresti viðkomandi annar.

Sótt er um jöfnunarstyrk rafrænt hjá Menntasjóði námsmanna og þarf rafræn skilríki til að senda inn umsókn.

nánari upplýsingar um Jöfnunarstyrk

Sækja um jöfnunarstyrk