Jöfnunarstyrkur

Jöfnunarstyrkur (áður dreifbýlisstyrkur) er námsstyrkur fyrir nemendur sem stunda nám á framhaldsskólastigi fjarri lögheimili og fjölskyldu.

Ef umsókn um námsstyrk berst eftir auglýstan umsóknarfrest skerðist styrkurinn um 15% frá 1. nóvember á haustönn og frá 1. mars á vorönn.

Ekki er hægt að sækja um styrk eftir að fjórir mánuðir eru liðnir frá umsóknarfresti á viðkomandi önn.

Sótt er um á sérstakri umsóknarsíðu sem má finna á vef Menntasjóðs