Innritun í framhaldsskóla á haustönn 2024

Sameiginlegt umsóknartímabil framhaldsskóla sem bjóða upp á innritun fyrir nám á haustönn 2024 verður sem hér segir:

  • Innritun eldri nemenda fer fram 15. janúar til 31. maí 2024
  • Innritun á starfsbrautir fyrir fatlaða nemendur fer fram 1.-29. febrúar 2024
  • Innritun nemenda í 10. bekk fer fram 20. mars til 8. júní 2024

Almennar upplýsingar um innritun í framhaldsskóla má finna á vef Miðstöðvar menntunar og skólaþjónustu. Þegar búið er að opna fyrir umsóknir er hægt að sækja um og skoða stöðu umsókna á sama vef.