Innritun í framhaldsskóla á haustönn 2021

Innritun á sérnámsbraut fer fram 1.-28. febrúar
Innritun nemenda á sérnámsbraut stendur yfir 1.-28. febrúar.

Forinnritun 10. bekkinga fer fram 8. mars til 13. apríl
Forinnritun nemenda sem ljúka munu 10. bekk vor 2021 (fæddir 2005 eða síðar) hefst 8. mars og lýkur 13. apríl nk. Nemendur fá sent bréf með leiðbeiningum um hvernig sækja á um frá Menntamálastofnun, en í bréfinu er líka að finna veflykil sem þeir nota til að komast inn í umsókn á netinu. Foreldrar fá einnig sent kynningarbréf um umsóknarferlið.

Lokainnritun 10. bekkinga fer fram 6. maí til 10. júní
Nemendur í 10. bekk geta sótt um eða breytt umsóknum sínum á þessu tímabili, allt fram til miðnættis 10. júní. Einkunnir þeirra flytjast sjálfkrafa frá grunnskólanum inn í umsóknargrunninn.

Innritun eldri nemenda fer fram 5. apríl til 31. maí
Eldri nemendur (fæddir 2004 og fyrr) geta sótt um frá 5. apríl til 31. maí. Þeir nota til þess Íslykil sem hægt er að sækja um á www.island.is og fá sendan í heimabanka (2-3 mínútur) eða á lögheimili (2-3 virkir dagar) eða rafræn skilríki frá viðskiptabanka.

Almennar upplýsingar um innritun í framhaldsskóla má finna á vef menntamálastofnunar