Fyrsti skóladagur haustannar

Í dag er fyrsti skóladagur haustannar 2026 og það er alltaf jafn gaman að sjá skólann fyllast aftur af lífi eftir sumarfrí.

Í haust eru rúmlega 100 nýnemar að hefja skólagöngu í FMOS. Þar af eru 75 nemendur sem útskrifuðust úr 10. bekk síðastliðið vor og eru nú að stíga sín fyrstu skref í framhaldsskóla.

Við bjóðum nýja nemendur hjartanlega velkomna í FMOS og hlökkum til að hefja önnina og vinna með þessum flotta hópi í vetur.

Við hvetjum alla nemendur til að hefja skólaárið af krafti, mæta vel í tíma og sinna náminu frá fyrsta degi. Góð mæting, skipulag og samfelld vinna eru lykillinn að góðum árangri og ánægjulegri skólagöngu.

Við óskum öllum nemendum og starfsfólki góðs gengis á önninni og hlökkum til samstarfsins framundan.