Tilnefning til Íslensku menntaverðlaunanna

Í dag, fimmtudaginn 5. október, á alþjóðlegum degi kennara var tilkynnt um tilnefningu til Íslensku menntaverðlaunanna í "Mannlega þættinum" á Rás 1. Það er gaman að segja frá því að Framhaldsskólinn í Mosfellsbæ er einn fimm skóla sem er tilnefndur til verðlaunanna í ár í flokknum framúrskarandi skólastarf eða menntaumbætur. Verðlaunin verða síðan veitt við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í nóvember.

Við erum mjög stolt af þessari tilnefningu.