Foreldrafundur

Miðvikudaginn 3. september kl. 19:30 er foreldrum og forráðamönnum nýnema í FMOS boðið að koma á foreldrafund og eiga spjall við kennara skólans. Meðal annars verður farið yfir starfsemi skólans og skipulag námsins kynnt.

Stjórnendur og náms- og starfsráðgjafi verða einnig á staðnum til að svara spurningum.

Fundinum lýkur í síðasta lagi kl. 21:00.