FMOS alltaf á tánum

Á haustönn 2022 unnu enskukennararnir Björk og Helena María, ásamt Þorbjörgu Lilju íslenskukennara, að starfendarannsókn sem bar heitið Leiðsagnarnám og markviss úrvinnsla nemenda. Í byrjun apríl birtist grein í bæjarblaðinu okkar, Mosfellingi, þar sem þær segja frá rannsókninni, tilgangi hennar, framkvæmd og niðurstöðum. Við hvetjum alla áhugasama um skólastarf að kynna sér innihald greinarinnar.