Endurskiladagur

Mánudaginn 6. nóvember er endurskiladagur í FMOS. Þá er ekki kennt samkvæmt stundatöflu heldur gefst nemendum kostur á að vinna upp ákveðin verkefni í áföngum sínum í samráði við kennara sína. Vinnan skal fara fram undir handleiðslu kennara. Kennarar eru í klösunum á milli kl. 10 og 14 með matarhléi kl. 12. Sumir kennarar eru þó bara annað hvort kl. 10-12 eða kl. 12-14 og hafa þeir upplýst nemendur sína um það.

Athugið að eftir endurskiladag verður ekki hægt að skila verkefnum sem unnin voru fyrr á önninni.