Bergið headspace

Bergið headspace
 
Rut Sigurðardóttir fagstjóri hjá Bergi headspace kom í heimsókn á sérnámsbrautina og kynnti starfsemina fyrir nemendum.
Bergið veitir einstaklingsmiðaða ráðgjöf og þjónustu til ungmenna frá 12 til 25 ára, á þeirra forsendum. Markmið Bergsins er að bjóða upp á lágþröskuldaþjónustu með áherslu á stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Í Berginu er lagt upp með að skapa notalegt og öruggt umhverfi fyrir ungt fólk sem vill fá aðstoð fagfólks og notenda með fjölbreytta reynslu.