Skólahald fellur niður fimmtudaginn 26. mars

Á morgun fimmtudaginn 26. mars er gert ráð fyrir appelsínugulri viðvörun á höfuðborgarsvæðinu milli kl. 8:00 og 13:00. Suðaustan 18-25 m/s og vindhviður staðbundið yfir 35 m/s. Einnig má búast við talsverðri snjókomu með slæmu skyggni og versnandi færð.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra mælist til þess að fólk verði sem minnst á ferðinni. 

Ekkert skólahald verður á morgun vegna veðurs og færðar.

Kennarar gefa fyrirmæli um hvernig nemendur geta best varið tíma sínum í viðkomandi áfanga og eru nemendur beðnir um að fylgjast með á Canvas og tölvupósti. Ekki er gert ráð fyrir netkennslu, hver kennari ákveður hvernig tími nemenda nýtist sem best. Starfsfólk vinnur fjarvinnu eftir því sem við á og mögulegt er.