Andlát Valgarðs Más Jakobssonar fyrrverandi skólameistara og kennara

 

Valgarð Már Jakobsson lést þann 31. janúar síðast liðinn eftir erfið veikindi. Valli var Í fámennum hópi kennara sem hóf störf við stofnun FMOS árið 2009 og var lengst af stærðfræðikennari við skólann. Hann var aðstoðarskólameistari í afleysingum 2019-2020 og 2022-2023 og skólameistari 2023-2025.
Valli var alla tíð virkur talsmaður leiðsagnarnáms og nýjunga í stærðfræðikennslu og hann var duglegur að miðla þeirri þekkingu áfram til skólafólks bæði hérlendis og erlendis.
Starfsfólk FMOS þakkar Valla samfylgdina og vottar fjölskyldunni dýpstu samúð.