Miðvikudaginn 4. nóvember kl. 15-17 verður haldið málþing í Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ um þær breytingar sem verða á réttindum fatlaðra og langveikra ungmenna þegar þau verða 18 ára. Málþingið er haldið í samstarfi við sérnámsbraut FMOS og atvinnu- og menntahóp ÖBÍ.
Þegar ungmenni fara úr grunnskóla í framhaldsskóla getur reynst erfitt að fá áfram þann stuðning sem þau hafa fengið áður. Reglur um greiðsluþátttöku í heilbrigðiskostnaði og endurhæfingarlífeyri geta einnig haft áhrif á hversu mikið nám þau geta stundað.
Á málþinginu verður rætt hvernig hægt sé að bæta stuðning við þessi ungmenni, koma í veg fyrir að þau hætti í námi og auðvelda þeim að ljúka námi á sama tíma og jafnaldrar þeirra.
Þátttakendur á málþinginu eru:
- Arndís Guðmundsdóttir, deildarstjóri sérnámsbrautar FMOS
- Natan Ernir Ingófsson, nemandi við FMOS
- Dr. Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands
- Dr. Kristjana Stella Blöndal, prófessor við Háskóla Íslands
- Ellen Óskarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og móir langveikrar stúlku
- Björgvin Már Karlsson, nemandi í Hringsjá
- Svanbjörg Sigmarsdóttir, sviðsstjóri endurhæfingarsviðs Tryggingastofnunar
Málþingið verður haldið í hátíðarsal FMOS. Rittúlkar verða á staðnum en þeir sem óska eftir táknmálstúlkun geta sent tölvupóst á unnur@obi.is. Gott aðgengi er að húsnæði skólans og næg bílastæði.