Valdagur

Val fer fram mánudag og þriðjudag, 26. og 27. október. Þegar opnað verður fyrir valið geta nemendur skipt út áföngum sem hafa verið forskráðir á námsferla þeirra eða bætt við áföngum eftir áhugasviði og framboði.

Nemendur staðfesta valið sjálfir í gegnum Innu. Leiðbeiningar verða aðgengilegar undir Aðstoð í Innu þegar nær dregur.

Við hvetjum nemendur til að ráðfæra sig við kennara sína, náms- og starfsráðgjafa eða stjórnendur við val á áföngum.