Foreldrafundur

Miðvikudaginn 30. ágúst er foreldrum og forráðamönnum yngstu nemenda skólans (fd. 2007) boðið að koma og hitta umsjónarkennara barna sinna. Meðal annars verður farið yfir starfsemi skólans og skipulag námsins kynnt. Stjórnendur og náms- og starfsráðgjafar skólans verða einnig á staðnum, kynna sig og svara spurningum.